hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir andsvarið. Einhvern tímann var ég á því að þetta væri jú einmitt samtrygging. Ég man eftir því að þegar ég lenti inni í almannatryggingakerfinu á sínum tíma þá hugsaði ég með mér: Sem betur fer er þessi samtrygging, sem betur fer fæ ég greiðslur frá lífeyrissjóði, uppreiknað miðað við réttindi, og hugsaði með mér: Þetta er bara flott. En síðan þegar þetta fór að raungerast þá komst ég að því að jú, ég fékk greiðslur frá lífeyrissjóðnum, en þá sá ríkið sér þann leik á borði að nota lífeyrissjóðinn til að skerða stóran hlut af því sem ég fékk frá Tryggingastofnun. Þannig að ég sá engan hag í þessu í sjálfu sér nema fyrir ríkið. Þarna var bara ríkið að segja: Heyrðu, nú spörum við okkur þessa upphæð og látum samtryggingarsjóðinn um þetta. Síðan þegar ég fór að spá í þetta eftir á — þeir aðilar sem borga í 35–40 ár í þennan sjóð ná ekki að fá krónu út úr honum vegna þess að þeir deyja áður en kemur að útborgun. Þá hverfa bara gífurlegar fjárhæðir, alveg ótrúlega miklar fjárhæðir, í þessa hít. Ég segi fyrir mitt leyti eftir að hafa lent í þessu og eftir að vera búinn að skoða þetta frá öllum hliðum: Séreign, hún erfist, hún er þín eign. Hún hefur ekkert með ríkið að gera. Þess vegna ætti viðkomandi leggja þar inn vegna þess að hann veit þá að hann fær þetta og þetta erfist.