152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[18:38]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Takk fyrir þetta. Vissulega er það þannig að séreign erfist, en tilgangurinn með breytingunni á þessu á sínum tíma, og hv. þm. Guðmundur Ingi þekkir það ágætlega eftir að starfa innan VR á sínum tíma, var fyrst og fremst að jafna lífeyrisréttindi á milli vinnumarkaða, var að fólk á almennum markaði nyti sömu tryggingar og þeir sem störfuðu hjá hinu opinbera. Vissulega er það þannig að ef ríkið ætlar sér að skerða þá gerir það það líka af tilgreindu séreigninni. Ekki bara 8% og 12%, heldur líka af tilgreindu séreigninni, hún verður notuð til útreiknings á skerðingum. Þannig að ég næ ekki alveg utan um að það borgi sig sérstaklega af því að mér finnast vera verðmæti í því að hækka framfærsluna úr 56% í 72% fyrir þann sem vinnur í 40 ár. Sá sem verður fyrir áfalli á þeim tíma nýtur þá aðstoðar eða útgreiðslu úr sjóði sem miðast við 72% en ekki 56%. Ég myndi því halda að fyrir þann sem ekki er búinn að vera lengi á vinnumarkaði en er samt komin inn í samtryggingarkerfi, myndi það skipta máli út frá hvaða stuðli er reiknað. Er verið að reikna þetta út frá 56%, eins og áður var, eða 72%? Ég næ ekki alveg utan um þetta. Ég skil að það er gott að þetta erfist en það er samtrygging í kerfinu sem er til stuðnings þeim sem þurfa á því að halda.