152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[18:41]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, vandamálið liggur eiginlega í því að gamla kerfið — maður man eftir því aftur í tímann þegar lífeyrissjóðakerfið byrjaði og við vitum hvernig margt klúðraðist, sérstaklega Lífeyrissjóður sjómanna. Það fór ekki nú gæfulega þar. Upphaflega var kannski einn vinnandi aðili og konan heima. Þetta var allt annað kerfi. Síðan hefur þetta verið að þróast. Við vitum það og það er bara staðreynd að þegar einstaklingur á lágmarkslaunum fékk 56% þá var það ekki nóg. Það er ekki nóg að fá 56% en þegar þú ert kominn upp í 72% þá ertu auðvitað strax kominn í miklu betri aðstöðu. En þetta er auðvitað eitthvað sem hver og einn verður að reikna út fyrir sig, hvort hann telur sig betur settan með séreignarsparnaðinn sjálfur, hafa þetta bara í séreign, eða hvort hann telur betra að setja þetta í aðallífeyrissjóðsgreiðslurnar.

En viðkomandi gerir sér ekki grein fyrir hversu lengi hann lifir. Sumir lifa lengi, verða 100 ára eða eldri og fá mikið út úr þessu og þá nýtast peningarnir auðvitað. En svo eru aðrir sem fá eiginlega ekkert út úr þessu og jafnvel ekki makarnir heldur nema bara eitthvað smá. En þetta er auðvitað reikningsdæmi fyrir hvern og einn. Ég ákvað þetta fyrir mig og segi að ég myndi velja séreignarsparnaðinn. Bara út frá þeirri tilfinningu eftir að hafa verið í kerfinu og meðvitaður um hvernig þetta er þá finnst mér séreignasparnaðurinn koma betur út.