svör við fyrirspurnum.
Ég kem hér upp og leita liðsinnis forseta þingsins vegna svara eða öllu heldur skorts á svörum við skriflegum fyrirspurnum. Ég lagði fram í aprílmánuði, þann 25., 26. og 29. apríl, þrjár skriflegar fyrirspurnir til forsætisráðherra sem allar varða bankasöluna. Frestur til að skila svörum samkvæmt þingskapalögum er löngu liðinn. Það eru liðnir 27 dagar, yfir 20 dagar, þegar talað er um 15 virka daga. Það eru 26 og 27 dagar síðan ég lagði þessar fyrirspurnir fram og það skiptir máli að svörin komi fram og ekki sé verið draga að svara spurningum sem þjóna aðhaldshlutverki (Forseti hringir.) til að koma í veg fyrir umræðu. Ég sé að ég hef ekki tíma en fæ að koma upp aftur. Ég biðla til forseta.