152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

um fundarstjórn.

[18:44]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég ætla að koma hingað upp og taka undir með hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur sem gagnrýnir þessa stöðu mála. Við erum í þingflokki Viðreisnar með sjö útistandandi fyrirspurnir sem komnar eru vel á tíma. Þetta er alltaf hvimleitt í ljósi þess að hér er eitt tæki þingmanna til að sinna aðhalds- og eftirlitshlutverki sínu. Þetta eru beinar fyrirspurnir til framkvæmdarvaldsins, til ráðherra. En þetta er sérstaklega alvarleg staða nú þegar ekki eru nema átta þingfundadagar eftir af starfsáætlun þingsins fyrir fundahlé. Nú geri ég mér engar sérstakar grillur um að sú dagsetning haldi. En þetta er engu að síður enn sem komið er, þar til forseti ákveður annað eða tilkynnir annað, sú dagsetning sem við erum að vinna eftir. Þetta eru ekki fyrirspurnir sem er í lagi (Forseti hringir.) að tefja fram í sumarhlé að svara. (Forseti hringir.) Þannig að ég tek undir beiðni um að við fáum aðstoð forseta við að koma þessum málum í höfn.