152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

um fundarstjórn.

[18:47]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Ég ítreka beiðni mína um liðsinni forseta við þingið í þessu máli. Það er auðvitað gömul saga og ný að þessi háttur sé hafður á en ég kom hingað upp sérstaklega til að vekja athygli á þremur fyrirspurnum sem lagðar voru fram í aprílmánuði varðandi bankasöluna því að það hefur verið sterkt einkenni hjá stjórnarliðum að þeir forðast allt samtal og alla upplýsingagjöf um þetta mál. Ég lagði fram fyrirspurn t.d. um samskipti innan ríkisstjórnarinnar, þessa óeiningu sem kom fram í fjölmiðlum. Ég lagði fram fyrirspurn um Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands, hvort forsætisráðherra teldi að Fjármálaeftirlitið hefði lagaheimildir til að rannsaka starfsemi Bankasýslunnar og embættisfærslu fjármálaráðherra sem fer með málefni Fjármálaeftirlitsins samkvæmt lögum og hverjar þær heimildir væru. Eins um þá ákvörðun að leggja Bankasýsluna niður, sem virðist hafa verið tekin með fréttatilkynningu í stað þess að taka ákvörðun þar um á ríkisstjórnarfundi. (Forseti hringir.) Fresturinn er liðinn og ég geri kröfu um það að svörin berist í þessari viku.