um fundarstjórn.
Frú forseti. Fátt hefur einkennt viðbrögð ríkisstjórnarflokkanna við allri gagnrýni á bankasöluna meira og betur en að mæta henni eilíflega og alltaf með þögninni. Það þarf að kreista fram öll svör og upplýsingar. Og ég er komin hingað til að gera einmitt það, kreista fram svör og upplýsingar því að samkvæmt þingskapalögum hafa ráðherrar að jafnaði 15 daga til að svara skriflegum fyrirspurnum. Ég lagði fram nokkrar fyrirspurnir, raunar þrjár, í tengslum við bankasöluna í aprílmánuði. Við erum að nálgast 30 daga. Ég biðla til forseta um liðsinni við að fá fram svör við fyrirspurn sem ég lagði t.d. fram 26. apríl um Fjármálaeftirlitið þar sem ég spurði forsætisráðherra þeirrar spurningar hvort Fjármálaeftirlitið hefði í hennar huga lagaheimildir til að rannsaka starfsemi Bankasýslunnar og embættisfærslu fjármálaráðherra, sem fer jú reyndar með málefni Fjármálaeftirlitsins, (Forseti hringir.) og svo aðra fyrirspurn um að leggja Bankasýsluna niður en sú ákvörðun var tekin með (Forseti hringir.) fréttatilkynningu í stað þess að ræða það á ríkisstjórnarfundi. Svörin vantar.