152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

um fundarstjórn.

[13:34]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er uppáhaldsfundarstjórnarefnið mitt. Það er skemmtilegt forrit sem ég renni yfirleitt af stað þegar verið er að fjalla um þetta, sem tekur saman meðalsvartíma hjá öllum ráðherrum. Þar er m.a. innanríkisráðherra, áður en hann varð að dómsmálaráðherra, með 47 daga svartíma. Núna sem dómsmálaráðherra er hann með 34 daga svartíma, ekki 15, eins og kom hérna fram áðan. Fjármála- og efnahagsráðherra er með 46 daga, ekki 15. Félags- og vinnumarkaðsráðherra er með 51 dag, en síðan varð einhver breyting þar á og nú er hann með 39, en ósvaraðar spurningar þar eru með dagamun upp á 47, þannig að það er að lengjast þar o.s.frv. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er með 32 daga og því um líkt. Stysti svartíminn sýnist mér í fljótu bragði vera hjá matvælaráðherra með 23 daga en er samt þó nokkuð yfir þessu 15 daga viðmiði en þó næst því. Þetta er staðan í dag, forseti, og ég sendi beiðni á forsætisnefnd um að þetta yrði tekið alvarlega.