152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

um fundarstjórn.

[13:40]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Þessi umræða er afar mikilvæg og brýn. Eins og fram hefur komið er eitt mikilvægasta hlutverk þingsins einmitt að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu. Þetta er að gerast aftur og aftur og við komum hingað upp og kvörtum í forseta, með fullri virðingu, sem gerir síðan ekki neitt í málunum. Eftirlitshlutverkið er ekki tekið nægilega alvarlega. Hvað er þá hægt að gera? Eitt af því sem við getum gert núna og er augljóst þegar við stöndum frammi fyrir þinglokasamningum er einfaldlega að segja: Þeir ráðherrar sem eru ekki búnir að svara fyrirspurnum fá ekki sín mál afgreidd. Þeir fá ekki sín mál á dagskrá þingsins fyrr en þeir eru búnir að svara hinu lögboðna hlutverki þingmannsins sem er að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu. Við þurfum stuðning frá forseta þingsins, stuðning frá forsætisnefnd til þess einmitt að hafa raunverulegt eftirlitshlutverk með framkvæmdarvaldinu. Ég legg til að það verði skoðað gaumgæfilega að ráðherrar sem ekki afgreiða fyrirspurnir sínar og svara almennt ekki fyrirspurnum eða skýrslubeiðnum frá þinginu verði bara settir svolítið í kæli þar til þeir taka sig taki.