um fundarstjórn.
Frú forseti. Mér finnst þetta bera keim af því hvernig er farið með framkvæmdarvaldið af þessari ríkisstjórn og í rauninni, almennt séð, af fyrri ríkisstjórnum líka, þar sem ráðherrar fara einhvern veginn inn í framkvæmdarvaldið, fara inn í stjórnsýsluna og taka ákvarðanir: Ég vil gera þetta, ég vil gera hitt, án þess í rauninni að það sé mikill faglegt mat þar undir. Það gerir það að verkum að þegar við hérna á þingi spyrjum um ákvarðanir og framkvæmd þeirra þá er ekki mikið um svör. En þannig gæti ráðherra sýnt fram á hversu ófaglega er unnið að ákvörðunum innan stjórnsýslunnar vegna þess hvernig ráðherra hagar sér. Ráðherra á hins vegar að mínu mati að vera útsendari þingsins innan stjórnsýslunnar. Ráðherra á að hlakka til að koma til þingsins og segja: Vitið þið hvað stjórnsýslan var að gera? Ég skal sko segja ykkur það. En það er ekki gert. Í staðinn passar ráðherra upp á allar sínar ákvarðanir og gefur ekki út upplýsingar um það hvernig þær voru teknar. Og þar af leiðandi koma engin svör. Aldrei.