152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

störf þingsins.

[14:15]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Skattlagning á séreignarsparnað stenst engar kröfur um sanngirni eða réttlæti. Sem dæmi um skattafslátt má nefna afslátt til einstaklinga vegna kaupa á hlutabréfum og skattafslætti til fyrirtækja sem vilja reka stóriðjuver hér á landi og taka upp kvikmyndir eða sjónvarpsþáttaraðir í íslensku umhverfi. Með skattafslætti vegna séreignarsparnaðar er stefnt að mikilvægum þjóðhagslegum markmiðum. Undantekning frá þeirri reglu að skattafsláttur komi ekki síður niður á þeim sem hans njóta snýr að fólki 60 ára og eldra sem öðlast hefur heimild til að taka út séreignarsparnað. Gagnvart þessu fólki er höfð uppi hörð skattakrafa um að skattleggja séreignarsparnað eins og hann væri launatekjur. Hann er það ekki. Hann er eign sem erfist.

Tekjur eru eins og streymandi vatn, eignir eru eins og stöðuvatn, bendir dr. Ólafur Ísleifsson, fyrrum þingmaður, á í nýlegri grein í Morgunblaðinu um skattlagningu séreignarsparnaðar. Ríkið viðurkennir séreignarsparnaðinn sem eign, hún erfist og er varin fyrir kröfuhöfum, lög heimila að ráðstafa séreignarsparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Þeir sem huga að íbúðarkaupum geta fengið séreign útborgaða skattfrjálst upp í fyrstu greiðslu. Séreignarsparnaðurinn er skattlagður eins og um væri að ræða tekjur. Skattur af fjármagnstekjum er 22%. Skattaframkvæmd sem leggur skatt á eign eins og hún væri tekjur stenst ekki. Fólki er mismunað eftir tekjum og við skattlagningu á séreign sinni. Þeir sem falla undir ákvæði um íbúðarkaup sleppa við skattinn.

Ég vitna, með leyfi forseta, í dr. Ólaf Ísleifsson: Á jafnræðisreglan ekki við nema stundum? Hvenær ætlar ríkisstjórnin að fella skattlagningu á séreignarsparnað í viðunandi farveg þar sem viðurkenndur er munur á skattlagningu eftir því hvort í hlut eiga eignir eða tekjur? Hvenær ætlar ríkisstjórnin að bregðast við augljósum staðreyndum?