störf þingsins.
Frú forseti. Þegar ég settist fyrst á þing sem varamaður seint á síðasta ári setti ég saman tillögu til þingsályktunar sem snerist um að gera áætlun um hvernig ætti að efla kornrækt á Íslandi. Mikilvægi þess að efla kornrækt á Íslandi hefur síðan þá stóraukist og það kallar á tafarlausar ákvarðanir og áætlanir. Verð á ýmiss konar kornvöru hefur rokið upp vegna stríðsins í Úkraínu með tilheyrandi áhrifum á bændur og neytendur. Alþjóðlegar hjálparstofnanir telja að hungursneyð vofi yfir fátækum löndum sem reiða sig á mataraðstoð sem eðli málsins samkvæmt er mun dýrari en áður. En hvers vegna hefur stríðið í Úkraínu svona mikil áhrif á kornmarkaðinn? Þó að landið sé stórt og gjöfult framleiðir fólkið í Úkraínu ekki nema 4% af öllu hveiti í heiminum, svo að dæmi sé tekið. Til samanburðar veiða Íslendingar u.þ.b. 1% af öllum fiski í heiminum. Ástæðan fyrir þessum miklu áhrifum er sú að megnið af kornvöru er ekki á heimsmarkaði. Markaður með korn milli landa er kannski einn tíundi af heildarframleiðslunni og þar er Úkraína afar stór í sniðum í flestum þeim tegundum sem mestu máli skipta; sólblóm, maís, hveiti og bygg þar á meðal. Þetta er einfaldasta skýringin. Svo vill einnig til að Úkraína er nálægt afar stórum korninnflytjendum sem ekki geta brauðfætt sig sjálfir, lönd í Miðausturlöndum og þar í grennd. Við erum ein þeirra þjóða sem reiða sig einnig á þessa alþjóðlegu markaði með korn. Við höfum byggt upp okkar landbúnað með þeim hætti að við þurfum að flytja nánast allt korn inn. Það átti hugsanlega rétt á sér á síðustu öld en nú er öldin önnur. Við höfum þekkingu, tækni, mannskap og jarðnæði til að framleiða talsverðan hluta af því korni sem við þurfum ofan í mannfólk og skepnur. Það þarf á hinn bóginn að gera tilteknar breytingar á stuðningskerfi landbúnaðar svo það virki hvetjandi fyrir kornrækt og ég tel að forsendur séu nú loks fyrir hendi til að drífa það mál áfram.