almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni. Það þarf að auka fé til rannsókna og rannsakenda á þessu sviði. Það er líka vert að hafa í huga hversu skelfileg vinna það er að vera rannsakandi í barnaníðsmálum. Ég hef rætt við lögreglumenn sem hafa starfað við það og það er bara manndrepandi að vinna við slíkt, að þurfa að horfa upp á hvers konar myndefni þarna er. En það er líka vert að hafa í huga að það er íslenskt hugvit sem hefur dregið úr því hvað þarf að horfa á vegna þess að það hefur verið þróuð aðferð þar sem er tekið hálfgert fingrafar af þessum myndum og þá er hægt að sjá hvort þetta er mynd sem hefur verið fundin áður. Þá þarf viðkomandi lögreglumaður ekki að horfa á þá mynd vegna þess að hann getur sagt: Já, það er búið að dæma einhvers staðar að þetta er barnaklám. Þannig að jú, við þurfum að leggja mikið fjármagn í að auka rannsóknir á bæði barnaníði og hatursorðræðunni en nýta okkur líka tækni sem hægt er að fjárfesta ef með þarf. Þegar kemur að barnaníðsmálunum þurfum við líka að tryggja fjármagn til samstarfs við önnur lönd (Forseti hringir.) vegna þess að þetta er hlutur sem þekkir engin landamæri.