152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

389. mál
[16:48]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er sammála því að vinna við þessar rannsóknir getur verið mjög erfið og ég þekki lögreglumenn sem hafa unnið í kynferðisafbrotadeild og rætt þessi mál við þá og þetta getur verið mjög lýjandi og kannski takmarkað hvað menn og konur endast lengi í því starfi. En það er samt mjög mikilvægt starf sem krefst mikillar sérhæfingar og reynslu. En það eru ekki bara þeir sem rannsaka, það eru líka dómarar. Ég man þegar ég var í laganáminu og var kúrsusnemi í námsvist hjá Héraðsdómi Reykjaness, þá kom upp mál þar sem lagt var hald á 108 eða 109 klámspólur og það þurfti að dæma í því máli. Dómararnir kviðu mjög mikið fyrir að dæma í þessu máli og þeir veltu mikið fyrir sér hvort þeir þyrftu að horfa á allar myndbandsspólurnar eða ekki. Þeir þurftu meðdómendur og spurði mig hvort ég vildi vera meðdómandi en ég afþakkaði það pent. Þeir voru í ákveðnum vandræðum með það, hvort þeir gætu metið allar 108 spólurnar sem klám eða ekki. Þetta er erfið vinna, krefst mikillar sérhæfingar. Ég þekki ekki til þessarar tækni sem hv. þingmaður kom inn á, sem leiðir til þess að þarf ekki að skoða allt efnið. Ég þekki það ekki, það væri fróðlegt ef hann gæti komið inn á það og útskýrt aðeins nánar.

En það er annað í þessu sem hv. þingmaður kom inn á, það er hinn alþjóðlegi vinkill á þessum málum, barnaníðsmálum. Við heyrum reglulega í fréttum þar sem verið er að koma upp um svokallaða barnaníðshringi, ef má kalla það það, þar sem fólk er að dreifa efni sín á milli í gegnum netið, þetta tengist mjög mikið netinu. Rannsóknir á því kostar peninga (Forseti hringir.) og þátttöku í alþjóðlegu samstarfi lögregluyfirvalda. Telur hv. þingmaður ekki að það beri að efla þann hluta líka og þekkingu lögreglumanna?