152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

389. mál
[16:53]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Mig langar í upphafi orða minna hér að fá, með leyfi forseta, að lesa upp úr yfirliti sem Mannréttindaskrifstofa Íslands lét vinna og er svohljóðandi:

„Að efla jafnrétti á meðal mannkyns og berjast gegn mismunun er grundvallarhugmynd mannréttinda. Hatursorðræða og annars konar áróður á sér stað í öllum samfélögum í mismiklum mæli og af mismiklu kappi. Hatursorðræða hefur áhrif á og grefur undan rétti annarra til jafnréttis og þess að þurfa ekki að þola mismunun. Hatursorðræða sem látin er óáreitt getur haft hrikalegar afleiðingar. Hún elur til að mynda á fordómum og það getur svo leitt til haturs. Slíkt hatur getur með tímanum grafið undan rótum samfélagsins og myndað gjá á milli hópa þess og leitt til samfélagsrofs.“

Svo mörg voru þau orð, virðulegur forseti. Í ljósi þessa vil ég bara fá að fagna þessu frumvarpi, að það sé komið þetta langt í þetta skipti. Það er ekki vanþörf á að tekið sé á því sem segir í 1. mgr., að verið sé að horfa til brota sem rekja megi til þjóðernisuppruna og þjóðlegs uppruna, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, fötlunar, kyneinkenna, kynhneigðar, kynvitundar og annarra samfélagslegra þátta. Þetta er ótrúlega stórt og mikið mál og að sama skapi kannski það mikilvægasta sem við fjöllum um hér. Við horfum til þess að verja þá einstaklinga sem hafa staðið höllum fæti oft og tíðum í samfélagi okkar. Ég veit ekki hvort það má halda því fram að það sé eitthvað að versna. Ég held að við sem þjóð erum orðin upplýstari. Hér hafa verið nefndir samfélagsmiðlarnir, þar sér maður svart á hvítu hvað er að gerast. Við sjáum þetta í kommentakerfunum, eins og hér hefur verið nefnt. Við sáum þetta kannski ekkert fyrir einhverjum áratugum síðan. Við gerðum oft grín sem krakkar að fólki sem var öðruvísi. Það var bara lagt í einelti. Samkynhneigðir menn voru bara settir til hliðar og voru ekki velkomnir í samfélaginu þannig að ég er ekkert viss um að ástandið sé verra í dag en það hefur verið. En vonandi erum við komin á þann stað að við erum tilbúin til að fjalla um þessi mál og horfast í augu við þetta. Þetta er auðvitað bara samfélagsmein sem á ekki að líðast í samskiptum á milli fólks.

Það er vont að tala um barnaníð og barnaklám, að verið sé að misnota börn vegna einhverra ankannalegra kennda, að fólk leyfi sér slíkt. Maður nær einhvern veginn ekki utan um það að þetta sé til en þessi svarti heimur er samt til og við þurfum að smíða um þetta lagaumgjörð þannig að hægt sé að ná til allra þeirra þátta sem snúa að þessu, ekki bara hatursorðræðunni heldur líka misnotkun á fólki, misnotkun á börnum. Ég fagna því að verið sé að skoða það, eða það verður væntanlega gert innan ekki langs tíma, að breyta fyrirkomulagi barnaverndarnefnda, færa þær pólitískt kjörnum fulltrúum til sérmenntaðra einstaklinga sem geta tekið betur á málunum vegna þess að oft í minni samfélögum þekkja allir alla og það er erfitt við að eiga. Ég þekki dæmi þess að börn hafi verið send á betrunarheimili af því að foreldrarnir vildu bara losna við þau. Það eru alls konar hlutir sem barnaverndarnefndir fá til sín og eru kannski ekki þess umkomnar að taka á þeim málum, þannig að ég held að það sé af hinu góða að við færum umfjöllun um börn sem eru í vanda eða verða fyrir áreiti eða ofbeldi inn á annan vettvang. Við þekkjum dæmi þess að það eru sifjaspell í gangi í samfélaginu, það eru skyldmenni að misnota lítil börn. Á því verður að taka og uppræta það.

Ég held kannski, virðulegur forseti, að það sé ekki nóg að við setjum einhver lög og bönn, við þurfum að fara að kenna. Ég held að við byrjum allt of snemma á því að setja kynin í einhver hólf og þannig eigi það að vera. Strákar mega ekki vera bleikir eða stelpur bláar. Jólalögin sem við sungum í gamla daga voru þannig að strákarnir áttu að sparka bolta og stelpurnar að vagga dúkkum en við þurfum að fara að horfa á annars konar uppeldi til að uppræta það að slíkt eigi sér stað í samfélaginu okkar. Gerendur í svona málum eru oftast karlmenn. Þó að það finnist konur sem misbeita valdi sínu og misnota annað fólk þá eru það að stærstum hluta karlmenn sem eru gerendur í ofbeldismálum sem við erum að fjalla um hér.

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að orðlengja þetta frekar. Ég vil þakka fyrir að þetta mál sé komið þetta langt og það sé full samstaða um það, því að þetta er það sem við eigum að leggja áherslu á, eins og segir í þessu yfirliti Mannréttindaskrifstofunnar; að efla jafnrétti meðal mannkyns og berjast gegn mismunun er grundvallarhugmynd mannréttinda.