152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

389. mál
[17:03]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort ég er þess umkominn að fara ofan í einstök mál og ræða þau hér í ræðupúlti. Ég sá þessa orðræðu sem átti sér stað og ég upplifði það prívat og persónulega ekki svo að hér væri um einhverja hatursorðræðu að ræða af því að ég lít þannig á, og þess vegna tilheyri ég kristinni kirkju, að við eigum að benda á það þegar fólk er misrétti beitt. Þannig lít ég á það. Það er alveg sama hvar það birtist. Við eigum að þora að vera höstug þegar okkur er misboðið. Ég lít þannig á að við getum ekki alltaf snúið blinda auganu að því sem er að gerast í heiminum eða þeirri misbeitingu sem á sér mögulega stað. Það að þeir sem benda á misbeitinguna séu orðnir sakamenn á ég erfitt með að samþykkja. Ég lít þannig á að þessi breyting á svona lögum sé til að verja einstaklingana, ekki einhverjar sérstakar stjórnvaldsaðgerðir. Við erum hér fyrst og fremst að horfa til þeirra einstaklinga sem hafa verið beittir misrétti.