almenn hegningarlög.
Herra forseti. Vissulega, ég er alveg sammála því. Þetta eru lög til að vernda Jón og Gunnu og Regn úti í bæ, tvímælalaust. Það sem við þurfum alltaf að vita á sama tíma er að valdið til þess að verja almenna borgara er í höndum þeirra sem hafa völd. Þar þurfum við alltaf að passa okkur á misbeitingu valds. Og eins nauðsynlegt og það er, og dæmin hafa sýnt að við verjum réttindi minnihlutahópa sem verða fyrir aðkasti, þá megum við aldrei gleyma því að skoða hvernig valdhafar nýta þau völd sem við gefum þeim hérna, þær heimildir sem við gefum þeim. Í þessu máli erum við tvímælalaust líka að glíma við ákveðin mörk tjáningarfrelsis sem eru eflaust alveg á svarta svæðinu þegar kemur að hatursorðræðu frá mínu sjónarhorni, en það hvernig opinbert vald gengur inn í slíkar aðstæður er, held ég, eitthvað sem við þurfum að gera okkur grein fyrir að skiptir máli. Það skiptir máli hvernig þessum lögum er beitt gagnvart opinberu valdi, opinberum persónum og svo almennum borgurunum líka. Þetta er til varnar almennum borgurum. Þetta er ekki til varnar opinberu valdi og getur aldrei verið það í rauninni. Ekki til varnar opinberum persónum heldur. (Forseti hringir.) Mér finnst nauðsynlegt að muna eftir því sjónarmiði, mörkunum á milli þessara hópa.