152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

389. mál
[17:07]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ég lít ekki þannig á að við eigum að semja lög til að verja valdið. Við erum sem valdhafar að semja lög til að verja einstaklingana, bæði fyrir valdinu og síðan hvert fyrir öðru. Lagasetning má ekki snúast um það að valdið sé að verja sjálft sig. Við verðum að vera tilbúin til þess sem opinberar persónur og þátttakendur í lagagerð sem snýr að almenningi að virða það að fólk hafi á okkur mismunandi skoðanir og við verðum bara að þola það sem opinberar persónur. Þingmaðurinn fer út í vangaveltur sem er kannski erfitt að ná utan um en skipta auðvitað máli, m.a. varðandi það hvernig við túlkum síðan lögin í framhaldinu. Kannski verða lögfræðileg álitamál þarna til framtíðar og þannig hefur það auðvitað verið. Það eru sett lög og síðan er rifist um það hverjir geta skýlt sér á bak við þau. Í þessu tilfelli upplifir maður að opinberir aðilar nýttu sér þessa skilgreiningu á því sem kallað hefur verið hatursorðræða til að verja sjálfa sig eða aðilar í kringum þennan viðkomandi aðila. En valdið má ekki verða þannig að það sé að búa til lagasetningu til að verja sjálft sig. Að öðru leyti held ég að ég hafi ekki svar við þessum vangaveltum.