almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Hér í störfum þingsins fyrr í dag fór ég með nokkrar setningar úr bók sem verið er að gefa út sem heitir Hennar rödd: Sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Þar var ein setning sem sló mig dálítið mikið sem tengist hatursorðræðu. Það var kona sem var upprunnin frá Afríku sem sagði, með leyfi forseta:
„Ég var ekki svört fyrr en ég kom til Íslands. Það að vera svört var merkimiði sem ég fékk hér.“
Það sló mig svolítið mikið að heyra þessa setningu, vegna þess að þetta segir okkur hversu miklir kynþáttafordómar og hatursorðræða getur komið upp hér á landi sem viðkomandi hafði ekki upplifað annars staðar. Mig langaði að heyra aðeins frá hv. þingmanni: Hvað getum við gert? Hann nefndi fræðslu og annað. Hvað getum við gert til að breyta þessu hugarfari þannig að við séum ekki að setja þessa merkimiða á fólk, merkimiða sem það hefur kannski ekki þurft að upplifa að fá annars staðar?