152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

389. mál
[17:33]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu. Ég hjó eftir því að hún sagði að við værum ekki komin nógu langt. Ég velti fyrir mér, kannski bara með hliðsjón af því sem hv. þingmaður nefndi líka, hversu fáum málum hefði verið vísað til Hæstaréttar til úrskurðar, hvort það sé ekki bara ástæðan fyrir því að við séum ekki komin nógu langt. Ég held að við séum að feta nýja vegu þegar við erum farin að reyna að ná utan um svona mismunun eins og hér er verið að nefna, hatursfulla orðræðu, barnaníð o.fl., og að við þurfum með einhverjum hætti að skilgreina það í lögum um hvað sé fjallað. Við sem löggjafi eigum að bera ábyrgð á því síðan að dómstólar fari eftir vilja okkar. Og þá langar mig til að spyrja þingmanninn: Er ekki nauðsynlegt í ljósi þess að við erum ekki komin nógu langt í því að skilgreina í hverju slík hatursorðræða felst, af því að hv. þingmaður nefndi sjálfan sig sem hluta af minnihlutahóp, að niðurnjörva þetta í lögunum fyrir dómstóla til að fara með hvað megi og hvað megi ekki?