almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir andsvarið. Jú, ég er að vísu sammála því að það þurfi að skilgreina aðeins betur hvað fellur undir hatursorðræðu og við þurfum auðvitað að vinna markvisst að því að þetta lagaákvæði nái utan um algengustu hatursorðræðuna sem er í gangi núna í samfélaginu og það er bara í kommentakerfum og á netinu og í skilaboðum. Það er svo auðvelt að tjá sig með hatursfullum hætti í stafrænu formi. Við byrjum að einhverju leyti að afmennska fólkið sem er hinum megin við skjáinn. En hvað varðar ítarlegt ákvæði þá veit ég ekki alveg nákvæmlega hvar ég stend í því að hafa lagaákvæðið svona ótrúlega niðurnjörvað og þröngt af því að það takmarkar auðvitað heimildir dómstóla til að beita því. En samt, ef það er mjög rúmt og ekki nógu ítarlegt þá er það líka frekar matskennt. Það er náttúrlega líka spurning hvað getur fallið þar undir. Ég held við þurfum að finna fullkominn milliveg og líta til lagaákvæðisins. Ég held að það ætti að setja saman einhverja nefnd um endurskoðun á þessu lagaákvæði. Svo þurfum við líka að líta til þess hvernig lögreglan meðhöndlar þau mál sem koma upp vegna hatursorðræðu af því að miðað við svarið við fyrirspurn minni til hæstv. dómsmálaráðherra varðandi það þá finnst mér tölfræðin einhvern veginn ekki vera nógu ítarleg. Vissulega skilur maður að lögreglan sé ekki endilega að halda utan um allar tölulegar upplýsingar en af því að þetta er svo nýtt lagaákvæði (Forseti hringir.) og það er smá vafi um hvernig á að túlka það þá finnst mér mikilvægt að það séu allar upplýsingar til staðar.