152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

389. mál
[17:37]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar svar. En getum við þá ekki, ég og hv. þingmaður, verið sammála um að það sé á þessum tímapunkti gott að verið sé að skrifa inn í lögin, m.a. af því að hv. þingmaður hefur sjálf orðið fyrir áreiti sem ég þekki til — og ég þekki mál dóttur minnar sem rak vef sem aðstoðaði ungar stúlkur vegna áreitis sem þær höfðu orðið fyrir og það áreiti sem hún varð fyrir, sem var síðan fellt niður af lögreglu. Þannig að ég spyr hv. þingmann hvort við getum ekki verið sammála um það, af því að við erum ekki lengra komin en þetta, að við séum að skrifa inn í lögin til þess að misvitrir menn, lögreglumenn með aðrar skoðanir en við eða dómarar með aðrar skoðanir en við, geti ekki leyft sér að túlka lögin út frá þeirri niðurstöðu sem þeir vilja sjá. Mér finnst einhvern veginn, af því að við erum núna að fara að reyna að vera eins og manneskjur og reyna að gera hlutina af einhverju viti, að við þurfum að hafa góðan vegvísi í lögunum um hvernig við ætlum að taka á þessum málum.