152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

389. mál
[17:56]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var yfirgripsmikil að venju. Mig langar að grípa aðeins niður í þar sem hún fjallaði um samfélagsmiðlana og þær breytingar sem samfélagsmiðlar hafa haft í för með sér. Eins og hv. þingmaður sagði: Maður ropaði eitthvað út í loftið á sínum tíma og það var svo bara horfið upp í skýin og kom aldrei aftur, en núna fer fólk inn á Facebook og Twitter og Instagram og segir eitthvað sem lifir greinilega svo að eilífu og er auðvitað hægt að rekja þá umræðu ef fólk vill gera það. Eins og hv. þingmaður nefnir erum við orðin okkar eigin fjölmiðill, við getum sagt það sem okkur sýnist nánast og það getur haft verulega skaðleg áhrif í för með sér og skaðað einstaklinga sem eru misrétti beittir á þennan hátt. Þá velti ég fyrir mér: Er eitthvað til ráða annað en að loka kommentakerfum í fjölmiðlum? Hvernig eigum við að stoppa þessa orðræðu inn á samfélagsmiðlunum? Getum við gert það? Við erum alltaf að búa til nýja tækni og við lærum á hana en við kunnum auðvitað ekki sem manneskjur að passa að stíga ekki hvert á annars tær í þessari umræðu. Sér þingmaðurinn einhverjar leiðir til að koma í veg fyrir þetta?