152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

389. mál
[18:39]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég svo sem ætla ekki að hætta mér djúpt ofan í siðferðilegan grundvöll refsinga og tel að hv. þingmaður sé talsvert betur að sér í þeim efnum. Varðandi ítrekunartíðnina og þetta sem hv. þingmaður nefndi þá kemur þekking hv. þingmanns úr lögfræðinni og ritgerðinni að einhverju leyti og mín kemur úr störfum mínum sem fjölmiðlamanns og þá var ég að vísa í þetta mál t.d. sem ég rakti áðan. Það sem kemur manni á óvart, og þetta er ekki eina málið sem ég fékkst við á vettvangi fjölmiðla þar sem þessi brotaflokkur var undir, er að það er bara þannig, eins og hv. þingmaður kom að áðan, að þessir menn brjóta af sér, virðist vera, aftur og aftur. Fórnarlömbin í þessu máli voru ótrúlega mörg. Játningin náði yfir tugi einstaklinga. Þeir sem síðan höfðu samband við ritstjórnina þess utan gáfu manni það til kynna að einstaklingarnir sem þessi einstaklingur hafði brotið gegn væru aldrei undir 100. Þá erum við að tala um nokkurra áratuga afbrotaferil. Auðvitað þarf eitthvað meira að grípa inn í gagnvart svona heldur en bara refsing. Þú setur ekki svona einstakling bara í fangelsi, lokar inni og svo kemur hann aftur út. Þetta er það sem fangar sem tala um betrun í fangelsum eru alltaf að nefna: Við komum alltaf aftur út. Þessir menn koma alltaf aftur út. Þess vegna var ég líka að vitna í umsögn Félagsráðgjafafélagsins þar sem er einmitt verið að tala um að það þurfi að tryggja þessum mönnum sem fremja brot gegn börnum aðgang að ráðgjöf og stuðningi fagaðila. Það hlýtur að vera eitthvað sem við leggjum mikinn metnað í til þess að reyna að gera miklu betur en við höfum gert hingað til, bæði inni í fangelsum og svo líka eftir að mennirnir koma út. Sumir þeirra vilja aðstoð.