almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Sannarlega áhugavert að heyra hann lýsa rannsóknarvinnu sinni í þessum efnum sem eru, eins og þingmaðurinn benti á, frá öðru sjónarhorni og annars eðlis heldur en mín rannsókn, þó að mér sýnist akkúrat þarna vera enn annað sjónarhorn sem leiðir hið sama í ljós. Það sem mér finnst áhugavert við þetta er ekkert endilega algerlega ótengt þeirri gagnrýni sem ég kom með á þessa löggjöf og svo sem aðra löggjöf sem ætlað er að vernda fólk gegn ofbeldi alls konar og það varðar getu stjórnvalda og yfirvalda til þess raunverulega að vernda fólk með þeirri löggjöf sem sett er. Það snýst bæði um það að þær reglur sem við setjum, þau úrræði sem við erum að lögfesta og taka upp þjóni þeim tilgangi sem þeim er ætlað, það séu úrræði en ekki úrræðaleysi. Ég upplifi ákveðið úrræðaleysi í bæði þessari löggjöf og margri annarri löggjöf og í tilraunum löggjafans og stjórnvalda til að vernda fólk, minnihlutahópa, vernda börn. Það er ákveðið úrræðaleysi í gangi og ég held að það skýrist ekki síst af þeirri vangetu okkar að horfa á brotamanninn eins og brotaþolann, líkt og Félagsráðgjafafélagið hefur bent á í sinni umsögn, leita að rót vandans og reyna að skrúfa fyrir lekann í stað þess að þurrka sífellt upp. Ég hef verið með þetta orðatiltæki (Forseti hringir.) í mjög mörg ár og það eina sem kemur upp þegar ég gúgla það er eigið blogg frá því í lagadeildinni. Kannski fann ég það bara upp.