152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

389. mál
[18:51]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Frú forseti. Tíminn dugði mér ekki áðan til að segja allt sem ég hef að segja um þetta mál. Ég ætla að taka upp þráðinn þar sem ég hætti, sem var að annaðhvort er enginn rasismi í okkar samfélagi, engin mismunun og engin áreitni á grundvelli kynþáttar og þjóðernisuppruna eða það eru alvarlegar brotalamir í okkar kerfi. Lögin sem ég ræddi um í ræðu minni áðan eru frá árinu 2018, þau eru orðin fjögurra ára gömul, og það hefur aldrei reynt á þau. Ég endurtek: Aldrei.

Við erum hér að ræða almenn hegningarlög og breytingar á þeim. Hvaða aðili er það sem hefur eftirlit með framkvæmd hegningarlaga? Það er jú fyrst og fremst lögreglan. Í apríl síðastliðnum hafði lögreglan afskipti af saklausum 16 ára dreng í tvígang. Var tilefni afskiptanna í báðum tilfellum ábendingar sem lögreglunni bárust um að þar gæti verið á ferð strokufangi sem lögreglan hafði auglýst eftir og lýsti sem sérstaklega hættulegum brotamanni. Ég rek það í grein sem ég skrifaði í fjölmiðla í kjölfarið að ég telji ótvírætt að þarna hafi að miklu leyti verið um svokallaða kynþáttamörkun að ræða, á ensku kallað „racial profiling“. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem grunur vaknar um alvarlega kynþáttamörkun í aðgerðum lögreglu. Dæmi sem ég nefndi í greininni var að árið 2019 þurfti ríkið að greiða bætur til manns, sem var dökkur á hörund, vegna kynþáttamörkunar eftir ábendingu frá almenningi þar sem hann var ranglega sakaðir um þjófnað á gömlum raftækjum. Ég er ekki viss um að almenningur myndi hringja á lögregluna og því síður að lögreglan myndi stökkva til ef ég sæist bera einhver sjónvörp milli húsa. En í tilefni af þessum atburðum varðandi þennan 16 ára dreng þá áttum við í allsherjar- og menntamálanefnd fund með ríkislögreglustjóra, Sigríði Björk Guðjónsdóttur. Hún sagði þar m.a. að það væri raunverulega óþolandi að saklaust ungmenni sem þarna átti í hlut verði fyrir þessari trámatísku reynslu en ríkislögreglustjóri sagði jafnframt að hún sæi ekki hvað þau hefðu getað gert öðruvísi.

Ég er sammála ríkislögreglustjóra að það sé ólíðandi að saklaust ungmenni verði fyrir slíkri reynslu. Það sem vekur þó ekki síður og jafnvel einna helst áhyggjur varðandi þetta mál er að lögreglan virðist ekki vita hvað hún gerði rangt í þessu máli. Svör ríkislögreglustjóra og lögreglunnar allrar afhjúpa alvarlegan skort á innsýn í það sem fór úrskeiðis, innsýn í vandann eins og talað er um í sálfræðinni og félagslega kerfinu. Það hefði að mínu mati augljóslega verið hægt að gera þetta öðruvísi. Í fyrsta lagi hefði lögreglan þurft að hafa einhvers konar verklag í kringum eftirfylgni ábendinga vegna þess að það er staðreynd að við öll sem einstaklingar erum haldin ákveðnum fordómum. Við erum haldin ákveðnum hugmyndum sem lita starf okkar. Það er ekki eitthvað sem við eigum að afneita en til að sporna við því að slíkar staðalímyndir, slíkir fordómar, sem við viljum alls ekkert hafa en orsakast af hinu og þessu, stýri verkum okkar viljandi eða óviljandi þá þurfum við hafa verklag og þjálfun í því að gera hlutina rétt, ekki bara eftir okkar innsæi. Okkar innsæi getur stundum verið dálítið hverfult og brigðult og það er oft innsæið sem er ansi fordómafullt.

Að mínu mati leiddi þessi fundur allsherjar- og menntamálanefndar í ljós að það er brýn nauðsyn á því að það verði gerð víðtæk úttekt á vinnubrögðum lögreglu og kerfinu öllu. En í ljósi þess sem við erum að tala um hér í dag er þetta allt hluti af stærri mynd sem er sú til að geta útrýmt mismunun í okkar samfélagi þá verðum við fyrst að skilja hvað í henni felst, hvaðan hún kemur. Við þurfum að viðurkenna það að við þurfum að breyta okkar hugarfari vegna þess að það er alveg ljóst af hverju það er ekkert að ganga að framfylgja þessum lögum. Við verðum að skilja út á hvað þau ganga.