almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég biðst forláts, ég hélt að það væri einhver úr nefndinni sem myndi koma fyrst með framsögu og beið þar af leiðandi rólegur eftir því að sú ræða byrjaði. En fyrst það er enginn frá nefndinni að tala þá langar mig aðeins að ræða þetta ákveðna mál vegna þess að því miður höfum við séð á undanförnum árum að það er tilefni til þess að horfa betur til laga um erlend mútubrot. Það er að mínu mati mjög ánægjulegt að sjá að hér er verið að víkka út ákveðna hluti, sérstaklega skilgreininguna þannig að þetta eigi ekki bara við um opinbera starfsmenn heldur líka aðila sem starfa hjá fyrirtækjum sem eru í eigu eða undir stjórn hins opinbera. Sjálfur vann ég hjá stórfyrirtæki fyrir rúmum áratug þegar það ákveðna fyrirtæki var að ganga í gegnum það að uppfylla svipaðar reglur og svipaðar kröfur sem Bandaríkjastjórn var þá að setja á fyrirtæki til þess nákvæmlega að koma í veg fyrir mútubrot. Og eitt af því sem ég man eftir frá því ferli var að það að skilgreina hverjir féllu undir það að vera opinberir starfsmenn þróaðist vegna þess að það var ekki nógu vel skilgreint. Og þó svo að við séum hér í þessu ákveðna frumvarpi að leggja til útvíkkun sem tekur líka til aðila sem eru undir stjórn hins opinbera eða í eigu hins opinbera, þá er það þannig að ef maður les 264. gr. a, sem er sú grein í hegningarlögum sem þarna á við, þá segir þar, með leyfi forseta:
„Hver sem gefur, lofar eða býður manni, sem stjórnar innlendu eða erlendu fyrirtæki í atvinnurekstri, þar á meðal fyrirtæki að hluta eða í heild í opinberri eigu, eða innir af hendi störf á vegum þess, gjöf eða annan ávinning, sem hann á ekki tilkall til, í þágu hans eða annarra, til að fá hann til að gera eitthvað eða láta eitthvað ógert í bága við starfsskyldur hans skal sæta fangelsi allt að 5 árum, eða sektum, ef málsbætur eru.
Ef maður, sem stjórnar innlendu eða erlendu fyrirtæki í atvinnurekstri, þar á meðal fyrirtæki að hluta eða í heild í opinberri eigu, eða innir af hendi störf á vegum þess, heimtar, tekur við eða lætur lofa sér eða öðrum gjöfum eða öðrum ávinningi, sem hann á ekki tilkall til, og gerir með því eitthvað eða lætur eitthvað ógert í bága við starfsskyldur sínar, skal sæta fangelsi allt að 6 árum, eða sektum, ef málsbætur eru.“
Við lestur á þessari grein þá uppgötvaði ég það að eitt af því sem við þurftum einmitt að fá skýrt hjá bandaríska þinginu og síðan hjá bandaríska viðskiptaráðuneytinu, sem setti reglurnar, var hvaða reglur myndu gilda um starfsmenn eða fulltrúa eða embættismenn alþjóðlegra stofnana. Þar erum við að tala um aðila eins og Sameinuðu þjóðirnar, Alþjóðabankann, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Evrópuráðið, við erum að tala um starfsfólk t.d. Afríkubankans og Afríkusambandsins. Eitt af því sem kom í ljós þegar farið var að skoða reglurnar sem var verið að setja í Bandaríkjunum var að skilgreiningin á því hvað væri opinber starfsmaður var ekki nægilega víð til að taka til þessara alþjóðastofnana. Ég hélt að ég gæti komist hjá því að segja að þetta væri vandamál hér vegna þess að ég horfði fyrst á það að í íslensku tungumáli er orðið „opinber“ kannski notað yfir alþjóðlega starfsmenn á meðan að orðið „ríkisstarfsmaður“ er of takmarkað. Þá hugsaði ég einmitt til þess að á ensku, með leyfi forseta, er talað um „government employee“, þeir eru ekki með neitt orð eins og opinber í sínu máli. Þeir breyttu sínum reglum á þann máta að bæta við í upptalninguna að þetta gilti líka um starfsmenn alþjóðastofnana eða eins og stóð hjá þeim, með leyfi forseta: „representatives or staff of international organizations“, eða fulltrúar eða starfsmenn alþjóðastofnana.
Ég geri mér grein fyrir því að þetta ákveðna frumvarp er komið alla leið til 3. umr. án þess að þetta hafi nú komið í ljós og ég verð að viðurkenna það að ég er það blautur á bak við eyrun hér á þingi að ég veit ekki hvort það er enn þá hægt að koma með breytingartillögur, þar sem væntanlega fer þetta mál til atkvæðagreiðslu næst þegar það verður rætt. Ég reikna ekki með að það fari til atkvæðagreiðslu strax eftir þessar umræður, vegna þess að það er ansi fámennt í salnum. Ég veit ekki alveg hvernig það virkar en ef svo er að ekki sé hægt að koma með breytingartillögur, það sé orðið of seint, þá alla vega mælist ég til þess að hv. allsherjar- og menntamálanefnd, og væntanlega fellur þetta undir hæstv. dómsmálaráðherra og dómsmálaráðuneytið, skoði þetta og læri þar með af þessu að það þurfi að passa upp á það að ekki sé verið að gera mögulegt að múta eða leyfa þeim aðilum sem vinna hjá alþjóðastofnunum að þiggja mútur. Það er það sem ég myndi vilja sjá gert í þessu.
Hitt atriðið sem mig langaði að nefna örstutt er að í greininni sem fjallar um þetta, sem ég las upp áðan, segir að viðkomandi fái gjöf eða annan ávinning. Þar sem ég þekkti til var skilgreint hvar væru mörkin á því, skilgreint hvað væri gjöf eða ávinningur. Ef ég tæki hér penna merktan Alþingi og gæfi einhverjum opinberum starfsmanni, er það gjöf sem telst vera nógu verðmæt? Kannski ef þetta er rosalega fínn penni en ekki ef þetta er venjulegur plastpenni. Það þarf að skoða það aðeins hvort það þurfi kannski að skilgreina betur hvar þessi mörk eru. En ég get bara sagt að mín reynsla er sú að það að vera með sterk lög sem taka á þessu á góðan máta er mjög mikilvægt. Það var þægilegt fyrir okkur sem starfsmenn alþjóðafyrirtækis á þessum tíma að þetta væri vel skilgreint vegna þess að þetta er alltaf vafaatriði. Það er mjög mikilvægt að við horfum á þessi mál á góðan máta vegna þess að spilling fyrirfinnst því miður ekki bara erlendis heldur líka hér innan lands og það er mikilvægt að okkar löggjöf taki á þessu bæði hér innan lands og erlendis og geri að verkum að þegar fólk verður uppvíst um slíka spillingu sé hægt að refsa þeim á viðeigandi hátt. Og það er einmitt mjög ánægjulegt að sjá að verið er að lengja fyrningarfrestinn og þyngja það sem hægt er að dæma fólk fyrir. Ég vil þakka þér fyrir, frú forseti, að hleypa mér í pontu þar sem ég var sofandi á verðinum og áttaði mig ekki á því að ég væri næstur á mælendaskrá.