almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Jú, vissulega skiptir gríðarlega miklu máli að við samþykkjum þetta mál. Ég hef alveg komið inn á það, bæði í 1. umr. og í þessari umræðu, að mér finnst mikilvægt að við séum að taka af allan vafa um að það að múta opinberum starfsmönnum, þ.e. opinberra fyrirtækja, sé alveg jafn mikið brot og að múta t.d. ráðherra og að það falli þarna undir. Eftir sem áður finnst mér mjög mikilvægt að árétta að þetta er allt of seint fram komið vegna þess að við hefðum þurft á þessu að halda fyrir Samherjamálið. Við hefðum átt að vera búin að þessu vegna þess að það eru 12 ár síðan við fengum þessi tilmæli fyrst inn til okkar. Það er fáránlega langur tími til að uppfylla aðeins tvö af þessum 17 tilmælum sem komu til okkar um hvað við getum gert til að berjast betur gegn þessum alvarlegu brotum.
Síðan hvað varðar refsiþynginguna. Jú, það er ágætt að hafa þetta bara í samræmi við alþjóðlega framkvæmd. Sömuleiðis tek ég heils hugar undir það sem hv. þingmaður segir um fyrningarfrestinn. En aftur, það hefði verið gott að fá þetta fyrir Samherjamálið sem er núna komið á þriðja ár í rannsókn. Það eru tvö ár eftir þar til að sá fyrningarfrestur rennur út. Ef mér skjöplast ekki þá gildir þetta varla afturvirkt. Annars er ég ekkert svo klár í þeirri lögfræði hvað varðar fyrningarfresti per se. Auðvitað er gott að það sé verið að lengja þetta í tíu ár í staðinn fyrir fimm ár vegna þess að einmitt, eins og hv. þingmaður kom réttilega inn á, þá eru þetta gríðarlega flóknar rannsóknir. Það þarf líka mannafla sem við erum ekki að gera nógu mikið í. Það þarf fjármagn sem við erum ekki að veita nógu mikið í og þegar ég segi við þá á ég auðvitað við þessa ríkisstjórn og þær fjórar eða eitthvað slíkt sem komu þar á undan.