almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, auðvitað hefði verið gott ef við hefðum haft þetta á hreinu. Ég verð að segja sem borgari í þessu landi að ég hef áhyggjur af því hversu vanmáttugt ákæruvaldið er til rannsókna á málum og hversu ofboðslega langan tíma fjármunaréttarbrot taka í meðförum kerfisins. Það hefur verið gríðarleg umræða í samfélaginu um hvað rannsókn kynferðisbrota tekur ofboðslega langan tíma og hvað er mikil hætta á að það verði tjón á þeim málum vegna þess hve rannsókn tekur langan tíma, einfaldlega bara vegna möguleika vitna t.d. á að skýra frá eftir bestu getu. En það er ekki minna vandamál þegar kemur að fjármunaréttarbrotum, hvað þá ef maður talar um mútubrot, milli landa. Það getur ótamargt gerst á leiðinni, t.d. það að möguleg vitni, eins og til að mynda í Samherjamálinu í Namibíu, heykist á að greina rétt frá ef svo langur tími líður frá því að mál byrjar í rannsókn og þangað til að vitni eru kölluð inn. Þau fara að vantreysta þeim sem fara með rannsóknina. Þá erum við komin í mjög vond mál þegar við ráðum svona illa við þetta. Við töluðum um það rétt eftir að Samherjamálið fór af stað að það yrði að setja töluvert meira fjármagn inn til héraðssaksóknara og lögðum það til hér við afgreiðslu fjárlaga. Það var kolfellt af stjórnarflokkunum þremur á þeirri forsendu að fólk gæti bara sótt sér pening í fjármálaráðuneytið, en það ætti ekki að gera það hér.