152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[19:28]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, þetta er viðvarandi vandamál, þetta með fjársveltið. Eins og ég kom inn á áðan þá var það ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þeir tóku sig til og skáru niður um mörg hundruð milljónir hjá sérstökum saksóknara, bara nokkurn veginn um leið og þeir tóku við völdum. Þetta tap hefur aldrei verið að fullu bætt. Þar af leiðandi býr héraðssaksóknari sem núna fer með þessi mál við mjög þröngan kost og honum hefur ekki verið bætt þetta tap. Hann hefur ekki mannafla eins og kom skýrt fram í bréfi hans til ríkisstjórnarinnar til að sinna jafn viðamiklu máli og Samherjamálinu án þess að það bitni á öðrum mikilvægum málum.

Við höfum fleiri dæmi um þetta, bæði fjársvelti og svo eru líka einhverjar aðrar aðferðir notaðar til að draga úr eftirlitsskyldu kerfisins, eins og t.d. bara að leggja niður skattrannsóknarstjóra. Það var einmitt gert undir formerkjum þess að gera framkvæmd skilvirkari og ég veit ekki hvað og hvað. En skattrannsóknarstjóri sjálfur var nú alveg gríðarlega ósammála því og færði fyrir því mjög sannfærandi rök í sinni umsögn um málið að það væri einfaldlega ekki svo og benti á það t.d. að héraðssaksóknari hefði einfaldlega ekki þann aðgang að gögnum sem skattrannsóknarstjóri hefur og getur þar af leiðandi ekki sinnt þessum rannsóknum með sama hætti og skattrannsóknarstjóri gat gert. Það er ýmislegt í þessu.

Svo langaði mig bara að segja að lokum með fyrningarfrestina að þetta er líka hápólitískt mál, hversu langur fyrningarfresturinn er. Hv. þingmaður minntist á kynferðisbrotamálin. Það var t.d. hápólitískt þegar ákveðið var að hafa fyrningarfrestinn í kynferðisbrotum á börnum ekki þannig að hann entist til 18 ára aldurs og jafnvel lengur. Það var auðvitað líka hápólitísk ákvörðun og hápólitískt mál. Vissulega er gott að það er verið að lengja fyrningarfrest. Það mætti gera það á fleiri stöðum.