almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir fína ræðu. Þetta er áhugavert mál sem er svo sem að fara í sína 3. umr. Það er einhvern veginn eitt af þessum málum sem stundum lauma sér í gegnum önnur og að því er virðist veigameiri mál í 1. umr., jafnvel 2. umr. og er svo komið núna á lokasprettinn. Með þessu frumvarpi er verið að bregðast við tilmælum sem hafa komið fram hjá vinnuhópi OECD vegna úttektar þar um framkvæmd á samningi um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna. Við lesturinn og við að hlusta á umræðuna hér fer ekki hjá því að hugurinn reiki til haustsins 2020 þegar Samherjamálið illræmda kom upp. Ég fór þess vegna að rifja upp þær aðgerðir sem ríkisstjórnin, sú sem nú situr í breyttri mynd þó, ákvað og tilkynnti að hún myndi grípa til. Mig minnir að þetta hafi verið í sjö liðum.
Mig langar sérstaklega að spyrja hv. þingmann um tvo af þessum liðum eða fá skoðun á því, annars vegar um þetta frumkvæði sem sjávarútvegsráðherra þáverandi ætlaði og átti að hafa að því aðild, að Matvælastofnun ynni úttekt á viðskiptaháttum útgerða sem stunduðu veiðar og ættu í viðskiptum með aflaheimildir m.a. í þróunarlöndum og síðan þessar miklu aðgerðir sem átti að fara í, að frumkvæði og gott ef ekki undir forystu forsætisráðherra, um varnir gegn hagsmunaárekstrum og mútubrotum. Nú eru liðin þetta tvö og hálft ár. Stjórnarandstaðan hefur í þingsal einstaka sinnum kallað eftir skýrslunni og það hefur verið lítið efnislegt að frétta. Mig langaði bara að heyra ofan í hv. þingmann sem hefur mikið rætt þessi mál og fjallað um, m.a. í starfi alþjóðanefnda Alþingis, hvort hún þekki til hvar málin eru stödd, þessar fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar sem eru orðnar þetta gamlar og hvort það væri ekki áhugavert innlegg í alla þessa umræðu.