152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[19:38]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Hún kemur einmitt inn á kjarna málsins. Mín helsta gagnrýni er að við höfum kannski fengist til þess að breyta lögum til samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar en svo fellur allt á framkvæmdinni. Það er t.d. ástæðan fyrir því að við lentum á þessum gráa lista. Jú, jú við vorum kannski með löggjöf sem var nokkurn veginn í lagi. Það voru nú engar gríðarlegar athugasemdir gerðar við hana. En það var enginn mannauður í að fylgjast með peningaþvætti. Það var í raun ekkert eftirlit með því að þessum lögum væri fylgt, ekki neitt. Þess vegna fengum við þessa gríðarlegu vondu falleinkunn frá FATF, að setja okkur á gráan lista, bara í skammarkrókinn, vegna þess að við vorum með framkvæmdahliðina algerlega niðrum okkur. Það sem fram kemur t.d. í þessari fjórðu úttekt frá þessum vinnuhópi um erlend mútubrot — sem beinir til okkar tilmælum sem þau beina til okkar í fjórða sinn — og sem mér finnst mest sláandi við þessa úttekt, er að það hafa borist a.m.k. þrjú mál til þar til bærra yfirvalda, bara gögn um erlend mútubrot sem rekja mátti til innlendra aðila og það hefur ekkert verið gert með þau. Þau hafa hreinlega ekki verið rannsökuð. Ef við erum að tala um framkvæmdalegu hliðina á þessu þá hef ég ekki séð neinar haldbærar skýringar á því hvers vegna stóð á því að það var bara ekkert gert með ábendingar eða kærur, eða hvað sem þetta var. Eins og því er lýst í skýrslunni þá átti þetta að vera „credible sources“ eins og þar stóð, bara áreiðanlegar heimildir fyrir því að mútubrot hafi átt sér stað og það var bara ekki brugðist við því hreinlega. Það að við séum að koma með lagatæknilega breytingu sem er svona stór breytir því ekki að stærstu tilmælin og mikilvægustu tilmælin eru framkvæmdalegs eðlis, þau eru að efla getu löggæslustofnana, þau eru að fræða alla sem vettlingi geta valdið gagnvart þessum brotum. Það er ekki að sjá að það sé verið að bregðast við því með viðeigandi hætti.