152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[19:40]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Smá umfjöllun um það af hverju mútur og mútubrot eru ekki tekin nógu alvarlega á Íslandi. Ef við förum aðeins yfir grunninn þá segir í almennum hegningarlögum, 109. gr.:

„Hver sem gefur, lofar eða býður opinberum starfsmanni, alþingismanni eða gerðarmanni gjöf eða annan ávinning, sem hann á ekki tilkall til, í þágu hans eða annarra, til að fá hann til að gera eitthvað eða láta eitthvað ógert sem tengist opinberum skyldum hans skal sæta fangelsi allt að 5 árum eða sektum ef málsbætur eru fyrir hendi. Sömu refsingu skal sá sæta sem beinir slíku að erlendum opinberum starfsmanni, erlendum kviðdómanda, erlendum gerðarmanni …“ o.s.frv.

Svo eru hér aðrar málsgreinar sem fjalla um kúgun, ef einhver hótar, segir t.d.: Ég get sagt ýmislegt sem mun hafa áhrif á það hvernig þú hagar þínu valdi ef þú borgar mér ekki peninga. Kúgun er þarna líka. Þetta er um þann aðila sem ber fé á opinberan starfsmann, alþingismann, gerðarmann, erlendan opinberan starfsmann o.s.frv. En síðan segir líka í 264. gr.:

„Hver sem tekur við, nýtir eða aflar sér eða öðrum ávinnings af broti á lögum þessum eða af refsiverðu broti á öðrum lögum, eða meðal annars umbreytir slíkum ávinningi, flytur hann, sendir, geymir, aðstoðar við afhendingu hans, leynir honum eða upplýsingum um uppruna hans, eðli, staðsetningu eða ráðstöfun ávinnings skal sæta fangelsi allt að 6 árum.“

Það er verið að breyta þessu aðeins með frumvarpinu núna. Allt gott og blessað með það. En hugsum aðeins um þetta. Hérna er það tilgreint að það er brot að bjóða opinberum starfsmanni gjafir eða ávinning og það er brot hjá opinberum starfsmanni að taka við slíkum gjöfum, meira að segja meiri refsing, sex ára fangelsi í núgildandi hegningarlögum, fyrir það að taka við gjöfum. Þetta er ítrekað í dreifibréfi 1/2006 sem er um viðmið um góða starfshætti ríkisstarfsmanna, því að gjafir geta svo sem verið fjölbreyttar. Þar segir, með leyfi forseta:

„Ríkisstarfsmaður skal ekki þiggja eða sækjast eftir gjöfum eða fjármunum frá einstaklingum, fyrirtækjum eða öðrum sem á einn eða annan hátt tengjast starfi hans ef almennt má líta á það sem endurgjald fyrir greiða eða sérstaka þjónustu. Sanngjarnt er að víkja frá þessu ef um afmælisgjafir eða annars konar tækifærisgjafir er að ræða enda séu verðmæti þeirra innan hóflegra marka. Hafa skal samráð við yfirmann ef vafi leikur á hvort starfsmanni er heimilt að taka við gjöf.“

Þetta er ekki bara annaðhvort eða, það er smá svigrúm til túlkana sem má skoða. Þarna kemur inn, held ég, það vandamál sem endurspeglast og hefur verið tæklað í málum undanfarið sem líta út fyrir að vera beinlínis mútumál. Nýlegt dæmi ef við horfum bara til innlendrar framkvæmdar er þetta, með leyfi forseta:

„Við fengum þarna einhverjar vínflöskur og flugelda og konfektkassa. Svo náttúrlega eigum við einhverja hádegisverði og kvöldverði með ráðgjöfum o.s.frv. En ekkert annað.“

Þetta sagði Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslunnar, þegar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður fjárlaganefndar, spurði hann um þetta á opnum fundi fjárlaganefndar með Bankasýslunni. Þarna eru starfsmenn og forstjóri Bankasýslunnar að funda með ráðgjöfum um að selja Íslandsbanka. Það er verið að velja hvaða ráðgjafar eiga að sinna því starfi, væntanlega. Þeir ákveða að tala við þessa eða hina og það skiptir máli fyrir þessa ráðgjafa að fá þetta verkefni, þetta er samningur eða verkefni upp á ansi margar milljónir, hundruð milljóna, fyrir ekkert svo rosalega mikla vinnu þegar allt kemur til alls. Ekki svo margir tímar þegar verkið er tekið fyrir annars vegar. Að mínu mati, í þessum aðstæðum, er ekki viðeigandi að þiggja vínflöskur, flugelda og konfektkassa þrátt fyrir að það líti kannski sakleysislega út. Ég held að þarna séum við í þessum almenna vanda að í einkageiranum er okkur alveg sama hvaða aðferðum fólk beitir þar til þess að fá að verða ráðgjafar o.s.frv. En þegar kemur að opinberum starfsmönnum þá eiga þar við einfaldlega almenn hegningarlög. Það er ekkert rosalega flókið. Það er mjög skýrt. Spurningin sem maður myndi vilja spyrja sig er hvort svona gjafir séu á þeim skala, við þetta tilefni, að um eitthvað óviðeigandi sé að ræða þrátt fyrir að þetta séu kannski ekki stórar gjafir. En flugeldur getur verið upp á einhverja tugi þúsunda króna, vínflöskur líka, konfektkassi upp á einhver þúsund og svo hádegisverðir og kvöldverðir, þeir geta farið upp í ansi háar tölur ef t.d. vín er í boði líka. En undir þessu liggur samningur upp á nokkur hundruð milljónir sem skiptir að sjálfsögðu rosalega miklu máli fyrir þá sem eru að fá það verkefni. Eru þetta mútur? Ég ætla ekki að fullyrða um það að ég myndi persónulega segja já, ætla ekki að fullyrða um það í skilningi laga og þess sem dómstóll myndi gera o.s.frv., en sem löggjafi myndi ég tvímælalaust draga línuna þarna og segja já, þetta ætti að vera flokkað sem mútur ef það er það ekki nú þegar. Ég held að það að þetta hafi gerst og verið alveg viðurkennt — orðalagið er „náttúrlega eigum við einhverja hádegisverði og kvöldverði“, eins og það sé bara eitthvað eðlilegt — sé lykillinn að vandanum sem við glímum við í þessum mútumálum. Fólk einfaldlega áttar sig ekki á því hversu alvarlegar í rauninni svona litlar gjafir geta verið með tilliti til þess hvaða álit fólk fær á þeim sem veita gjafirnar. Það þarf oft ekki mikið til að breyta skoðun fólks úr því að vera neikvæð í jákvæða bara með einfaldri gjöf, með brosi stundum. En ég ætla ekki að segja að það sé þannig, ég er bara að segja að einfalt bros getur breytt viðhorfi manna mjög auðveldlega almennt séð, alls ekki með tilliti til múta eða neitt svoleiðis, best að hafa það ekki flókið. Ég er bara að segja að sálfræðin í þessu er mjög einföld og hún þarf ekki að snúast um hundruð þúsunda eða milljónir eða eitthvað svoleiðis. Gjafir þurfa ekkert endilega að vera svoleiðis til að hafa áhrif. Kannski er það þannig gjafir sem þarf til að hafa áhrif að yfirlögðu ráði en svona tækifærisgjafir, eða réttara sagt ekki tækifærisgjafir í þessu tilfelli af því að tækifærið þarna snýst um nokkur hundruð milljóna króna verkefni, getur breytt skoðun á því hver verður fyrir valinu á mjög lúmskan hátt. Þess vegna ber að varast slíkar gjafir. Það er ástæðan fyrir því að það er alvarlegt þegar bornar eru gjafir á opinbera starfsmenn eða þeir taka við gjöfum. Eins og það orðast í greininni, „ef almennt má líta á það sem endurgjald fyrir greiða eða sérstaka þjónustu“.

Segjum að það sé verið að velja á milli tveggja ráðgjafa. Forstjóri Bankasýslunnar fer í mat með einum ráðgjafanum. Sá ráðgjafi fær verkefnið, hinn ráðgjafinn sem vill líka fá verkefnið segir: Ég fékk ekki tækifæri til að bjóða honum í hádegisverð, mér datt það ekki einu sinni í hug af því að það gæti verið flokkað sem mútur. Ég fékk ekki verkefnið. Ég get almennt, sem hinn ráðgjafinn, litið á það sem svo að þarna hafi verið um slíkan greiða að ræða. Þess vegna er það mikilvægt að taka þessu á mjög alvarlegum nótum og taka jafnvel litlar gjafir alvarlega.

Það kom tiltölulega berlega í ljós í Samherjamálinu, að hluti af málsvörninni þar var að segja: Ef við hefðum ekki verið að múta þeim — það var reyndar ekki viðurkennt sem mútur — þá hefðu einhverjir aðrir gert það. Þetta var samkeppni um gæði og þarna eru gæðin vissulega mæld í milljörðum. Fyrir vikið verða gjafirnar mun stærri. Kannski þurfti það af því að þarna voru opinberir starfsmenn, ráðherrar, beinlínis að sækjast eftir mútum. Það er kannski öðruvísi í þessu tilfelli sem ég er að vísa í með orð Bankasýslunnar. Ég skil alveg hvernig þetta getur komið upp sem hluti af því sem þeir hafa talið vera eðlileg samskipti við ráðgjafa af því að þannig gengur það og gerist kannski á einkamarkaði. En sömu reglur gilda ekki gagnvart opinberum starfsmönnum sem þeir eru í þessu hlutverki sem starfsmenn og forstjóri Bankasýslunnar. Það er bara ekki þannig. Við þurfum að geta greint þarna á milli. Þess vegna er það í fína lagi ef t.d. fjármálaráðherra í starfi sínu á einkamarkaði selur pabba sínum eitthvað en sem ráðherra eða opinber starfsmaður má hann það alls ekki. Það er munur þarna á milli sem við verðum að læra og taka alvarlega af því að við förum hérna með ansi mikla fjármuni almennings sem við þurfum að fara vel með. Þarna erum við að glíma við verkefni upp á nokkur hundruð milljónir og gjafir innan þess verkefnis eru ekki eitthvað sem við eigum að líta á með of léttvægum hætti að mínu mati. Lögin ættu að vera þannig ef þau eru það ekki nú þegar. Það eru skilaboð inn í framtíðina. Svo eru það t.d. starfsmenn alþjóðastofnana, eins og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson bendir á að vanti í rauninni í lögin, þar sem talað er um erlenda opinbera starfsmenn en ekkert endilega starfsmenn alþjóðastofnana. Þetta eru mál sem eru, að því er virðist miðað við t.d. opinn fund fjárlaganefndar með Bankasýslunni, einhvern veginn allt of hversdagsleg. Allt of hversdagslegar mútur sem ættu að mínu mati að vera flokkaður sem mútur samkvæmt almennum hegningarlögum. Hvort þær eru það eða ekki er annarra að meta en við verðum að hætta þessum hversdagslegu, mögulegu mútum til opinberra starfsmanna. Það er ekki í lagi eins og segir í dreifibréfinu, opinberir starfsmenn eiga ekkert að leita eftir gjöfum, þeir eiga ekkert að fá gjafir. Það er bara mjög alvarlegt mál ef um er að ræða gjafir til opinberra starfsmanna því að þeir fara með vald til þess að velja hverjir fá mögulega hundruð milljónir króna af eigum almennings.