152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[19:55]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir sína fínu ræðu. Eins og svo oft áður nálgast hann málefnin á áhugaverðan háttt. Mér finnst þessi fókus sem hann setti í máli sínu á þetta sem hann kallar litlu múturnar ef mútur skyldi kalla, þær tengjast svolítið því sem ég hef lengi haft áhuga á og það eru áhrif smæðar samfélagsins okkar á þessa stöðu mála og frændhyglinnar sem einkennir alla jafna lítil samfélög. Staðreyndin er sú að það er hægt að setja lög um hvað sem er. Ef eftirfylgnina skortir annars vegar vegna þess að þær stofnanir sem ætlað er að fylgjast með framvindu viðkomandi laga eða upplýsa mál eru ekki til þess bærar, m.a. vegna þess að þeim er ekki gert það kleift af fjárveitingarvaldi eða síðan hitt, að einhvers konar menning ríki í samfélaginu sem geri það að verkum að það er tekin afstaða um mál, stundum, jafnvel eiginlega bara þvert á lög sem sett eru þá dugar ekki að setja lög. Við erum hér að tala um mútumál og mútur hafa það eðli að þær dúkka ekki upp í hendurnar á yfirvöldum vegna þess að báðir aðilar, sá sem greiðir mútur og sá sem þiggur þær — það er báðum í hag að fela þetta. Það er enginn gerandi og þolandi beinlínis. Það eru tveir gerendur og þolandinn eru almannahagsmunir alla jafna. Það er oft erfitt að fá þetta upp á yfirborðið vegna þess að við erum hér að tala um vini okkar, ef ekki fjölskyldu, skólafélaga, tengda aðila í gegnum fjölskyldubönd, vinabönd, nágranna, guð veit hvað. Mig langar að heyra vangaveltur hv. þingmanns sem ég veit að hefur oft tjáð sig um þetta, um hvaða áhrif þetta hefur á framgöngu okkar í þessu máli og hvað er hægt að gera.