152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

almenn hegningarlög.

318. mál
[20:02]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Jú, vissulega gagnvart einkaaðilum upp á samninga að gera o.s.frv., þannig að ekki sé að vera svindla á þeim og svoleiðis. En þegar það er bara innan þeirra kúlu sem slíkri þá bara gera þeir það innan síns fyrirtækis eins og þeir vilja. Það er bara þeirra vandamál að ráða ekki hæfustu manneskjuna heldur einhverja aðra og það er allt í lagi. Það opinbera er annað.

Stærri sátt, er nóg að setja lög? Við þurfum, held ég alveg tvímælalaust, að læra hvar mörkin liggja. Þetta gerist ekkert sjálfkrafa. Það hjálpar til að setja lögin. Það vinnst smám saman inn í framkvæmdina með kærur og dóma o.s.frv. og þannig lærum við það smám saman en það væri hentugra að vera fljótari að því að læra af, til að koma í veg fyrir að það verði kannski einhver svona mál.

Maður hefur heyrt það sem rök í alvörunni á Íslandi að það sé svo erfitt að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra af því við erum svo lítið samfélag, það séu allir tengdir öllum og þá ætti bara sleppa því. Auðvitað ekki. Auðvitað sleppum við því ekki. Við verðum að gera það þrátt fyrir að það sé erfiðara og meira að segja er það mikilvægara en annað, að reyna þeim mun meira að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. En það verður auðveldara í stærra samfélagi og samfélagið er að stækka. Það stækkaði með EES. Það stækkar með fjölgun fólks á Íslandi og smám saman, því miður bara smám saman, væri gott að taka stór skref í þessu. Það þarf að vera samtaka í því. Það eru margir aðilar sem þurfa að læra þetta á sama tíma og kannski er það góðs viti hvernig við tókum einmitt á kosningamálinu. Það var stórt skref. Við vissum kannski ekki alveg hversu rosalega stórt skref. Fólk gerði sér kannski ekki alveg grein fyrir því. En sjáum til.