almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég ætlaði bara að koma örstutt upp af því að ég hef verið að nýta mér tímann frá því að ég kom hér í ræðu áðan til að fletta aðeins upp í þeim alþjóðasamningum sem hérna eru í tengslum við erlend mútubrot. Við höfum talað um að OECD hafi verið að gera athugasemdir. Árið 1997 var settur alþjóðasamningur um mútubrot og hvernig þau yrðu meðhöndluð á milli ríkja. Mig langaði bara að taka það sérstaklega fram, af því að ég ræddi hér að skilgreiningu vantaði á því hvaða starfsmenn alþjóðastofnana féllu undir þessa grein hegningarlaganna, að það er nákvæmlega þannig að ef maður skoðar þennan alþjóðasamning sem Ísland hefur skrifað undir að skilgreiningin þar og skilgreiningin í hegningarlögunum eru á smáskjön og sú skjön er að það vantar að alþjóðlegir starfsmenn séu sérstaklega teknir fram
Svo langaði mig bara örstutt í framhaldi af þeirri umræðu sem var hér áðan um hvað séu mútur að tala um að í leiðbeiningum sem OECD gaf út um þennan samning er fjallað um að siðareglur og lög sem skilgreina hvað teljist sem mútur taki á eftirfarandi hlutum; gjöfum, öllu því sem hægt er að kalla risnu á íslensku, held ég að nafnið sé, þ.e. að bjóða út að borða, bjóða í leikhús, bjóða í alls konar hluti, ferðalög, framlög í pólitíska sjóði, jafnvel það að ég segi við einhvern kollega minna „Gefðu til uppáhalds hjálparstofnunarinnar minnar“ eða „Styddu uppáhalds íþróttafélagið mitt“. Allt eru þetta hlutir sem OECD hefur talið upp að þar þurfi að skilgreina nákvæmlega hvar mörkin séu. Ef við horfum á hvað önnur lönd hafa verið að gera, Bandaríkin og Bretland, þá er t.d. skilgreining á gjöfum sú að það sé hvaða hlutur sem er sem hefur eitthvert verðmæti. Þá hefðu að sjálfsögðu rauðvínsflöskur og annað verðmæti en kannski félli ekki þar undir ef ég tæki einn af pennunum frá Alþingi og gæfi einhverjum, það hefur kannski ekki mikið verðmæti.
Mig langaði bara að koma þessu að þar sem þessar umræður eru búnar að vera mjög áhugaverðar.