almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður nefnir þarna atriði sem hann telur að ekki séu til staðar í þessu frumvarpi, að þarna sé ákveðinn hópur starfsmanna sem gæti hugsanlega fallið utangarðs og þessi lög nái ekki til. Við erum að reyna að girða fyrir það sem heitir mútur til erlendra aðila þannig að við verðum að ná þá utan um alla þá aðila sem málið gæti varðað þegar verið er að smíða slíkt frumvarp.
Því langar mig að spyrja hv. þingmann: Hvaða leiðir telur hann réttast að fara til að girða fyrir þetta? Er rétt að staldra við og vísa þessu aftur eða er viðkomandi þingmaður tilbúinn til að leggja fram einhverjar breytingartillögur til þess að við náum þá utan um þennan hóp? Ég held að ef við erum að horfa til starfsmanna alþjóðastofnana þá skipta þeir auðvitað bara jafn miklu máli og aðrir þegar er verið að horfa á þennan hlut. Mér finnst eðlilegt þegar komin er fram ábending um að eitthvað vanti upp á í þessu máli að við reynum þá með einhverjum hætti að girða fyrir það, hvernig sem það er gert. Er hv. þingmaður þá tilbúinn til að leggja fram breytingartillögu sem gæti lokað þessu gati?