almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það sé mikilvægt að drífa þessar breytingar sem hérna eru í gegn. Það er svona vafaatriði hvort það borgi sig að vera klessa inn á síðustu metrunum breytingartillögu sem kannski þarf að hugsa betur hvernig þarf að orða og annað þannig að hún taki örugglega yfir öll þessi mál. Ég myndi frekar vilja sjá, og ég hef þegar rætt við formann í allsherjar- og menntamálanefndar, að við myndum bara nýta tækifærið og strax í haust þegar þing kemur saman aftur, að þá sé kannski bara búið að vinna þetta í ráðuneytinu og við séum með tilbúið frumvarp sem geti þá farið hratt í gegn hérna þar sem verið er að bæta við starfsmönnum alþjóðastofnana því það er mjög mikilvægt að það sé þarna inni í lögunum, sér í lagi þegar kemur að þróunaraðstoð. Þá er mjög mikilvægt að þar séu skýrar reglur. Við höfum verið að auka t.d. þátttöku einkafyrirtækja í þróunaraðstoðinni. Þá er mjög mikilvægt að þar séu skýrar vinnureglur fyrir þau fyrirtæki, hvað þau mega og hvað þau mega ekki. Ég held að það verði auðvelt að ná breiðri samstöðu innan þingsins um að laga þetta. En ég myndi ekki treysta mér til þess núna á síðustu metrum þingsins að setja inn eitthvað sem við kannski þurfum svo að laga aftur eins og við erum búin að þurfa að gera með kosningalögin svolítið oft núna. Þannig að við kannski frekar tökum okkur þessa þrjá, fjóra mánuði þangað til við komum aftur saman og erum þá viss um að við getum lagt fram gott frumvarp.