152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.

517. mál
[20:44]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur fyrir góða framsögu. Mig langaði bara aðeins að forvitnast meira um þetta mál þar sem ég hef ekki heyrt neitt af því. Ég er ekki í nefndinni og þar af leiðandi hef ég kannski ekki alveg áttað mig á því hvernig þetta er. Ég hef sjálfur notið góðs af því að það sé frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins. Það var mikil breyting þegar ég hætti að þurfa að vera með stimpil. Þá var Bretland reyndar enn þá í EES. Ég var með stimpil frá geimverudeildinni, eins og mætti út færa það á íslensku. Á ensku var það, með leyfi forseta, „alien department“. Það var mikill munur á að þurfa ekki lengur að fara í gegnum það til að fá að vinna í Bretlandi. Það hefur svo aftur breyst. En það er þessi ákveðna vinnumiðlun, það net var ekki til og ég hef ekki nýtt mér það. Mig langar að vita hvort nefndin hafi fengið einhverjar upplýsingar um það hversu margir Íslendingar nýta sér þetta til að fá vinnu í Evrópu og öfugt, hversu margir Evrópubúar nýta sér þetta til að fá vinnu á Íslandi. Seinna málið er sérstaklega mikilvægt núna. Við höfum heyrt að það vanti 8.000 manns hingað til að starfa í ferðamannageiranum. Vonandi nýtum við okkur svona net til þess að vekja athygli fólks á því. Það er kannski ekki þannig að erlendir aðilar kíki á Alfreð eða aðrar vefsíður.