frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir andsvarið. Nei, það var ekki tekið sérstaklega til skoðunar hversu margir nýta sér þetta net. Þetta er í rauninni bara innleiðingarmál og hluti af þeirri skoðun heyrði ekki undir skoðun nefndarinnar í þessu máli. En engu að síður tel ég mikilvægt að við séum með skýran lagaramma utan um það hvernig við högum málum, eins og tímabundinni tilfærslu milli starfsstöðva, t.d. frá Bretlandi eins og hv. þingmaður kom inn á, og eins gagnvart þeim sem koma hingað og vilja starfa á starfsstöð einhvers fyrirtækis hér. Það liggur fyrir nefndinni annað frumvarp þess efnis. Ég vonast til að það frumvarp fái sanngjarna og góða meðferð fyrir þinginu þegar það kemur hingað inn. Ég bind miklar vonir við að við höldum áfram að nýta okkur þetta net. Það skiptir okkur máli, bæði hvað varðar menntun og atvinnu Íslendinga úti um alla Evrópu og við höfum séð það í tugi eða hundruð ára að við höfum verið að nýta okkur þetta net. Það væri svo sannarlega áhugavert ef hv. utanríkismálanefnd myndi kalla eftir þessum upplýsingum og athuga hvort og hvernig Íslendingar nýta sér þetta net og hvernig Evrópubúar nýta sér vinnumiðlunarnetið hér á landi.