152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.

517. mál
[20:48]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góð svör. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni. Ég vona að hitt frumvarpið sem tengist starfsstöðvum fari einnig í gegn á þessu þingi rétt eins og þetta ákveðna þingmál. Ég þakka líka hv. þingmanni fyrir að gefa mér hugmynd að fyrirspurn sem ég get sent inn. Það er spurning hvort ég sé orðinn of seinn fyrir þetta þing, en hún fer þá bara inn fyrir haustið.

Ég hef svo sem ekki neina aðra spurningu til hv. þingmanns. Ég vil bara að lokum lýsa yfir ánægju með vel unnin störf nefndarinnar við að keyra svona mikilvæg mál áfram. Ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur að íhuga hvernig við getum auglýst þetta net betur hér á landi, bæði gagnvart fólki sem hefur áhuga á því að fara út en líka, sérstaklega núna þegar okkur vantar margt fólk í störf, að við séum að auglýsa það á breiðari grundvelli og nýta okkur það sem við höfum. Það er nefnilega stundum þannig að við erum að taka þátt í alls konar Evrópusambandshlutum sem við borgum kannski peninga fyrir en gleymum að nýta okkur þá. Það er náttúrlega af hinu slæma. Ég vona bara að þetta fari hratt og vel í gegn.