152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.

517. mál
[20:49]
Horfa

Frsm. velfn. (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafn Ólafssyni fyrir andsvarið og hrós í garð hv. velferðarnefndar. Samstarfið hefur verið virkilega gott varðandi þetta mál. Það er mjög áhugavert að fá fram svör við fyrirspurn um hversu margir nýta sér þetta net. Við getum gert mun betur í því að taka á móti jafnvel stúdentum hér á landi í gegnum þetta net af því að við höfum margt fram að færa hér á Íslandi. Við erum með öflugt menntakerfi sem við eigum að vera stolt af og sem við eigum að markaðssetja upp á þetta að gera. Þannig að ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni þegar hann nefnir akkúrat það.