152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.

517. mál
[20:50]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér breytingu á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem hér er kallað EURES-netið eða vinnumiðlunarnetið. Þetta leiðir hugann að inntaki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, þessu svokallaða fjórfrelsi sem er eiginlega stóra inntakið í innri markaði ESB. Það er um frjálsa vöruflutninga, þ.e. frjáls viðskipti með vörur á innri markaðnum, og síðan þjónustufrelsi, sem byggir á því að hægt sé að hefja og stunda sjálfstæða atvinnustarfsemi og fyrirtækjarekstur í öðru EES-ríki, frjálsa fjármagnsflutninga, sem heimila að hægt sé að flytja fjármagn á milli landa sem eru á þessum innri markaði, og síðan er það frjáls för launafólks sem felst þá í þessu vinnumiðlunarneti sem hér um ræðir og er auðvitað merkilegur hlutur og gefur okkur sem og öðrum íbúum á innri markaði EES kost á að flytja okkur á milli svæða og vinna þar sem við viljum. Mig langar að spyrja hv. þingmann í því ljósi hvort hún telji ekki að þetta fjórfrelsi svokallaða hafi gagnast okkur, að þessi samningur um Evrópska efnahagssvæðið hafi gagnast okkur Íslendingum frekar en öðrum þjóðum, að þetta hafi haft verulega góð áhrif fyrir okkur sem samfélag.