frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir andsvarið. Svo sannarlega hefur þetta nýst öllum Evrópuþjóðum og mér finnst mikilvægt að við höldum því á lofti og að við höldum í þetta net. Þetta skiptir okkur máli. Við erum eyland úti í miðju Atlantshafi og við höfum ýmislegt fram að færa en við getum sótt ýmislegt upp á meginlandið og mér finnst mikilvægt að við sinnum þessum alþjóðaskuldbindingum sem við höfum skuldbundið okkur til. Hv. þingmaður spyr hvort þetta hafi nýst Íslandi meira en öðrum þjóðum. Ég hef ekki séð nein gögn um að það hafi nýst okkur betur en öðrum heldur tel ég að þetta net sé mjög mikilvægt fyrir EES-þjóðirnar og fyrir Evrópu í rauninni, að við getum verið í þessu samstarfi upp á þetta að gera. Mér finnst mikilvægt að við höldum því til haga. Ég held að það sé ekki neitt sem segir okkur að það hafi nýst okkur betur en öðrum Evrópuþjóðum, nei.