frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur fyrir hennar svar. Ég velti fyrir mér m.a. því sem var nefnt í andsvörum hér áðan, við erum að flytja inn mikið af vinnuafli, m.a. frá Póllandi, sem hefur gert það að verkum að við höfum getað sinnt þeim framleiðsluþátturinn sem við erum að sinna, m.a. úrvinnslu sjávarafurða sem hafa síðan verið unnar og fluttar að stórum hluta inn á Evrópumarkað. En við erum líka framleiðsluríki og við byggjum okkar starfsemi mikið á útflutningi. Maður sér t.d. mörg önnur ríki sem eru svolítið að framleiða fyrir innri markaðinn en við erum meira að framleiða til útflutnings og þess vegna var ég að velta því fyrir mér hvort þetta hafi virkað betur fyrir okkur en mörg önnur ríki, sérstaklega vegna þess að við erum heldur ekki í Evrópusambandinu þar sem eru kannski enn meiri fríðindi til staðar. Það eru ekki mörg ríki á þessum innri markaði sem eru utan Evrópusambandsins nema Noregur, Ísland, Sviss og einhver fleiri, Lúxemborg, en ég held að þau séu bara ekki í sams konar stöðu og við sem erum kannski miklu háðari því að flytja inn erlent vinnuafl til að sinna því sem við þurfum að gera en ekki síður að hafa aðgang að markaði til að flytja út þær vörur sem við erum að framleiða hér.