frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir andsvarið og gott innlegg inn í þessa umræðu. Ég held að þetta virki á báða bóga. Við erum að nýta okkur þetta en við erum jafnframt að opna okkar markaði fyrir öðrum. Ég er mjög hlynnt því að við förum enn þá meira í innlenda framleiðslu þannig að við getum verið aðeins sjálfbærari t.d. á hrávörumarkaði og öðru slíku hér á landi. Ég held að við höfum alla burði til að gera það og getum nýtt okkur þetta fjórfrelsi og þennan markað jafnvel aðeins betur. Ég held að það sé fullt af sóknarfærum fyrir Ísland til að gera sig gildandi í framleiðslu í fleiri þáttum heldur en við erum nú þegar að gera. Það kemur inn á það að við þurfum að horfa til þess að við sem eyríki þurfum að geta verið sjálfbær með svo marga hluti. Ég þakka aftur fyrir andsvarið.