152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.

517. mál
[20:57]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Eins og ég lýsti yfir áðan þá tel ég þetta frumvarp vera af hinu góða. Við megum svo sannarlega vera duglegri við að auglýsa þetta EURES-net. Ég hafði ekki heyrt talað um það fyrr en ég sá það nefnt hér í frumvarpi og ég reikna með að það séu margir aðrir þannig. Það er vonandi að viðeigandi ráðuneyti, hvort sem það er utanríkisráðuneytið eða félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, leggi kannski í smá vinnu við að kynna þetta fyrir fólki sem hefur áhuga á því að fara og starfa annars staðar í Evrópu en líka fyrir þeim sem eru að leita að starfsfólki til að koma hingað sem, eins og við höfum heyrt, er mjög mikill fjöldi. En í tilefni þess að við erum að tala um frjálsan atvinnu- og búseturétt fólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og ég veit að það er enn þá innan nefndarinnar frumvarp um að flytja sig á milli starfsstöðva, þá langaði mig að hvetja til þess að velferðarnefnd og þeir sem sitja í henni vinni aðeins í því með félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu að koma á leiðum fyrir fleira fólk til að sækja hér um vinnu á þægilegan hátt. Við höfum heyrt slæmar sögur um það að fólk t.d. frá Bandaríkjunum sem sækir um störf hér á landi þurfi að bíða í allt að sex mánuði eftir því að allt fari í gegnum það kerfi sem við erum með til að votta hvort viðkomandi sé passlegur inn í okkar samfélag. Ég veit að við getum gert betur þar. Ég held líka að það sé breiðari samstaða innan þingsins heldur en fólk kannski telur um að finna leiðir til þess að gefa fólki tækifæri á að koma hingað og starfa, hvaðan sem það kemur úr heiminum, hvort sem það er frá Evrópska efnahagssvæðinu, frá Norður- eða Suður-Ameríku, Afríku eða Asíu, vegna þess að við þurfum fjölbreytt starfsfólk og við þurfum fólk með mismunandi þekkingu og reynslu. Ef við ætlum að tryggja það að við séum áfram með land þar sem hagvöxtur er hár og nýsköpun og annað fær að blómstra þá þurfum við virkilega að vinna í því að opna okkar vinnumarkað, þvert á landamæri, og gera það í sátt, bæði hér á þingi en líka með verkalýðshreyfingunni og tryggja það að hér sé hægt að mæta þeim vexti sem er að verða, hvort sem það er í ferðamennskunni eða nýsköpun eða tæknigeiranum eða líftækninni. Við erum að sjá sem betur fer fyrirtæki hér á landi blómstra á mörgum sviðum og við þurfum að passa að okkar regluverk og lagaumhverfi sé þessum fyrirtækjum ekki fjötur um fót og að lagaumhverfið sé þannig að það sé hægt að fá hingað fólk með reynslu og þekkingu á þeim sviðum sem við erum að leita að. Það er enginn að fara að bíða í sex mánuði eftir því að skipta um starf í t.d. líftækniiðnaði eða hátækniiðnaði eða nýsköpun. Það er meira að segja þannig í Kísildalnum að meðaltími sem starfsfólk er hjá fyrirtækjum er 18 mánuðir þannig að ef það á að bíða í sex mánuði eftir því að fá atvinnuleyfi á Íslandi þá er það sennilega búið að skipta um fyrirtæki hvort eð. Við þurfum að vinna saman í þessu og við þurfum að taka þá umræðu og vera óhrædd við að gera það. Við þurfum að vera óhrædd við það að vera með breitt samstarf um það, eins og ég sagði áðan, þvert á flokka, þvert á samfélagið því við höfum alla kosti til að halda áfram að byggja hér upp öflugt hagkerfi, öflugt samfélag og við höfum svo sannarlega landplássið til að taka á móti fleira fólki. Við þurfum kannski að byggja svolítið hraðar og passa að húsnæðisverðið fjórfaldist ekki á næstu árum. En við þurfum að taka á þessum málum og vera ekki að slást í skotgröfunum þegar við erum að því heldur finna út hvernig við getum leyst það saman.