frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Virðulegur forseti. Hér erum við að tala um frjálsa för launafólks á innri markaðnum sem er samið um þegar við undirgengumst það vera inni á Evrópska efnahagssvæðinu. Ég hlustaði með athygli þegar hv. þingmaður nefndi að opna vinnumarkaðinn þvert á landamæri, það er eitthvað sem vekur athygli mína. Hér er nefnt að það þurfi að gera það í samstarfi við stéttarfélögin. Það hefur verið þannig að þegar fólk utan Evrópska efnahagssvæðisins hefur komið til landsins til vinnu hefur þurft sérstakt atvinnuleyfi, sem m.a. hefur þurft stimpil frá stéttarfélögunum. Ég er forvitinn um það hvernig útfærslan gæti verið á slíku. Ekki það að ég sé á móti því að opna vinnumarkaðinn. Hér vantar fólk. Það vantar þúsundir starfsmanna á Íslandi, bæði í ferðaþjónustu, í byggingariðnaði, í veitingageiranum. Við vitum af því að það vantar fólk og það er eftirspurn eftir vinnandi höndum. Sér hv. þingmaður engin tormerki á því að opna vinnumarkaðinn þvert á landamæri eða sér hann fyrir sér einhverja samningsgerð á milli viðkomandi landa til að slíkt sé hægt?