frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Í mínum huga tekur alla vega það ferli sem við erum með í dag allt of langan tíma. Það sem við þurfum að gera er að spyrja okkur: Hvað er það sem við þurfum að tryggja? Við þurfum t.d. að tryggja það að ekki sé verið að bjóða fólki sem kemur erlendis frá lægri laun heldur sé það að fá sambærileg laun og njóti sambærilegra réttinda og fólk sem kemur annars staðar frá. Við þurfum bara að vera tilbúin að setjast niður og átta okkur á því hvað við þurfum að gera til að þetta sé gert á réttmætan máta. Við vitum það öll að þegar t.d. atvinnuleyfi eru tengd við ákveðinn vinnustað og ákveðinn vinnuveitanda þá lendum við t.d. í því að viðkomandi þorir ekki að vera með neinar mótbárur við einhverju sem vinnuveitandinn segir vegna þess að ef hann segir frá einhverju þá á hann á hættu að missa vinnuna og verða rekinn úr landi. Þetta eru hlutir sem við þurfum bara að horfa á og ég trúi því að það sé hægt að finna leiðir til að tryggja öll þessi atriði á mun skilvirkari hátt heldur en er núna og gera það á þannig máta að bæði vinnuveitendur og verkalýðsfélögin og aðrir séu sáttir.