152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.

517. mál
[21:10]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Í ræðu minni fyrr í dag þá fór ég með orð konu af erlendum uppruna sem talaði um að það virtist vera að stjórnkerfið hérna væri hugsað eins og allir sem kæmu hingað hefðu fæðst á Keflavíkurflugvelli. Það er mikið til í þessu vegna þess að þegar fólk kemur hingað þá erum við í mörgum tilfellum ekki að horfa á þá menntun og þá reynslu sem þetta fólk hefur. Þegar hv. þingmaður spyr hvort við eigum að horfa til efnahagslegra flóttamanna þá spyr ég sjálfan mig: Ef það vantar kokka á veitingahúsin hér til þess að við getum tekið á móti ferðamönnunum, eigum við þá að vera að snúa við lærðum kokkum bara af því að þeir koma frá einhverju öðru landi? Helst vildi ég að þeir kæmu ekki hingað sem efnahagslegir flóttamenn heldur hefðu auðvelda leið eins og í gegnum þessa vinnumiðlun til að sækja um starf hér á landi þó að þeir séu að koma utan EES. Þeir eru með ákveðna þekkingu, eru með ákveðna reynslu sem við erum að leita að, allt frá því að vera lærðir sem kokkar upp í það að vera t.d. með doktorsgráðu í lyfjafræði og koma hingað til að vinna hjá einhverjum af lyfjafyrirtækjunum hér eða með gráðu eða þekkingu í tölvumálum og koma hingað að vinna hjá fyrirtækjum eins og CCP. Þetta þurfum við að geta opnað allt.